Okkar síða
Ungarnir okkar
09.05.2007 21:15:58 / adalstef

Hittingur

Hæ hæ :lol:

Vá hvað það er langt síðan einhver hefur skrifað hér!!  Ég mundi varla lykilorðið en ...... það tókst.

Ég set hérna bréf sem hún Ágústa sendi á alla sem hún hafði netfang hjá:

Í tilefni af nú er ár liðið frá því að við kynntum verkefni okkar í Vettvangstengda valinu og útskrifuðumst úr KHÍ höfum við því nokkrar ákveðið að gera okkur glaðan dag eða kvöld og hittast og fá okkur að borða saman. Vonum við að allir sem stóðu í Skriðu og kynntu verkefni sín mæti og við getum átt góða kvöldstund.  Búið er að panta borð fyrir okkur á Caruso.

 Endilega hafið samband við Ágústu til að hún viti ca hversu margir koma

Ég hlakka til að sjá sem flesta og látið nú hvert annað vita svo að við hittumst sem flest.

kv

Heiða Stef


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 14:09:13 / Hrund

Well, well

Jæja, þá eru komnar inn myndir frá 17. maí og linkurinn inn á þær hér til hliðar. Nú styttist í Króatíuferðina og mar er bara orðinn doldið spenntur enda annað varla hægt, eða hvað? Ekkert framundan nema strönd, sól, sjór, sundlaug, sundlaugargarður, skoðunarferðir, shótel, skokkteilar, sbikini, sFeneyjar, og fleira skemmtilegt...:haha:

Hlakka til að hitta alla Króatíufara aðfaranótt miðvikudags, hina hlakka ég til að hitta við útskriftina eða ef Ágústa heldur pottapartý!!

Kv. Hrund :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 18:24:20 / B-bekkur

Lotta

Jæja Stelpur er ekki komin tími á að gera einhvað saman. Hvernig lýst ykkur á að hafa söngvakepnis kvöld einhver staðar í henni Reykjavík ??????'

Bara svona til að gera einhvað saman og alltaf er gaman að fá sér í glas og gera sig að fíflum. Kv . Helga Lotta.

p.s. Hverjir komast föst kvöldið 31. mars.

´Svona í lokin hressum upp á móralinn og mætum þangað hvar svo sem er hægt að syngja.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 18:24:20 / B-bekkur

Lotta

Jæja Stelpur er ekki komin tími á að gera einhvað saman. Hvernig lýst ykkur á að hafa söngvakepnis kvöld einhver staðar í henni Reykjavík ??????'

Bara svona til að gera einhvað saman og alltaf er gaman að fá sér í glas og gera sig að fíflum. Kv . Helga Lotta.

p.s. Hverjir komast föst kvöldið 31. mars.

´Svona í lokin hressum upp á móralinn og mætum þangað hvar svo sem er hægt að syngja.


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 21:22:36 / Hrund

KRÓATÍA var það heillin!

Croatia deux points 8) 

Jæja, ekki laust við að manni hlýni að innan við tilhugsunina um 20°C+, sundlaug, strönd, sjó og e-n eðalkokkteil í annarri. 

Svo ekki sé minnst á félagskapinn ;) Ah, get bara ekki beðið.... en hef víst nóg að gera samt fram að brottför, varla að maður hafi tíma til að leiða hugann að því að maður sé að fara út :(

En, æðislega gaman að hafa að þessu að stefna, get ekki beðið :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 15:10:18 / Hrund

Leikskólaheimsókn

Jæja dömur mínar og herrar, okkur er boðið í leikskólaheimsókn í Jöklaborg næsta miðvikudag kl 11:00.

Það er sem sagt einn leikskólinn í Breiðholti sem Arna talaði um í síðasta tíma að starfar eftir mannauðstefnu og nýtir sér fræði Sergiovanni varðandi stjórnun. Anna Bára leikskólastjóri á von á okkur og ætlar að segja okkur allt um starfsemi skólans. Fyrir þá sem ekki vita er Jöklaborg í Seljahverfi, nánar tiltekið við Jöklasel, ekki langt frá Sorpu hehe, ekki skemmtilegt kennileiti. Þau sem vantar nánari leiðbeiningar tali við mig eða Þóru Dögg, eða Helenu eða eða eða...

Síðan er planið að heimsækja tvo leikskóla í Grafarholti næsta föstudag, Geislabaug og Reynisholt. Tímasetning auglýst síðar ;) Reynisholt er leikskólinn sem er með nuddið og jógað, hún kom til okkar í Stefnur og Strauma leikskólastjórinn þar, (man ekki hvað hún heitir, sorrý Heiða og Helena :S ) En aðstoðarleikskólastjórinn heitir Ingibjörg, man það af því hún var að versla boli í gær, aukaatriði.

Vonandi mæta sem flestir, gaman að því, þessu eru leikskólastjórir voða hrifnir af, að við skulum sýna svona frumkvæði í að kynna okkur ólíka strauma og stefnur í ólíkum leikskólum og um að gera fyrir okkur einmitt að gera það, þó við séum kannski búin að ráða okkur annars staðar þá fáum við kannski nýjar hugmyndir osona. Ég kemst ekki inn á KHI síðuna en þegar ég geri það ætla ég að auglýsa þetta líka í póstinum þar. Kv. Hrund :D 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 14:05:42 / Hrund

2006

Gleðilegt nýtt ár kæru bekkjarsystkin!

Þá eru það síðustu metrarnir í sófanum áður en stressið hefst...

Svo er þetta bara að verða búið, þótt ótrúlegt megi virðast. Og þá er það bara spurning hvort maður fer bara að vinna við ræstingar eða e-ð. Eru ekki ÖLL störf betur launuð en leikskólakennarastarfið? Maður spyr sig.  Það er vonandi að það gerist e-ð spennandi með nefndinni hennar Steinu Valdísar, og svo eru kosningar í vor...

Sjáumst á mánudaginn,

kv. Hrund


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2005 14:36:53 / adalstef

Við erum komin í jólafrí !!

Jóla - jóla - jólafrí :lol:

Jæja kæru skólasystkin loksins er prófunum lokið og við komin í langþráð jólafrí.

Ég vona að enginn hafi farið yfirum 8|í þessum próflestri og að allir geti notið jólanna og öllu því sem fylgir þeim, konfekti, góðum mat, letilífi og fjölskylduboðum. oh hvað ég hlakka til.

Ógeðslega var nú gaman í gær í partýinu okkar :D Ég dansaði mig algerlega upp að hnjám og verð örugglega alla helgina að jafna mig á harðsperrunum. Ég hlakka til að sjá myndirnar sem teknar voru, sumar allavega ;)

jæja best að fara að gera EKKERT!! Gvuð hvað þetta er æðislegt.

Hafði það sem allra best um jólin og komið endurnærð til baka í Janúar.

kveðja

Heiða


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.12.2005 17:35:10 / SiggaB

Hello allir

hallo vonandi er öllum búið að ganga vel í prófum og próflestri, við erum hálfnuð jeiii. Mig langaði bara að Auglýsa jólasýningunna okkar í skautunum. Þetta er held ég bara flottasta sýning hingað til, mjög vönduð og mikið lagt í hana. Sýningin er á þeim skemmtilega tíma á mánudaginn 12 des kl 17.30 sama tíma og heimaprófið ég veit. En það gæti verið sniðugt að taka sér smá frí frá bókunum og kíkja á þessa sýningu hún er svona 1.30 klt mjög flott. Tilvalið að skella sér í höllina í fríska og kalda loftið og slaka aðeins á. þá kemur maður líka endurnærður til baka í bækurnar :D. Ef þið sjáið ykkur fært um að mæta byrjar sýningin kl 17.30 í skautahöllinni í Laugardal og það er frítt inn. kveðja Sigga tigga.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.11.2005 18:04:46 / SiggaB

ekki mikið um skriftir hér upp á síðkastið

Ég ákvað samt að leggja inn nokkur orð. Það eru einhverjir búnir að vara að tala um að þeim langi að koma og horfa á skautakeppnir og sýningar og svona niðri á svelli. En alla vega fyrir þá sem hafa áhuga er bikarmót núna um helgina bæði lau og sun á skautasvellinu í laugardal. keppnin byrjar á laugardag kl 9.00- 12.45 og 9.45-12.45 á sunn mæli með seinni partinum á sunn þá er bestu skautararnir með löngu prógrömin mér finnst það alla vega alltaf skemmtilegast. Þær byrja að skauta kl 11 báða dagana. Svo er nátturulega jólasýning 12 des á ömurlegum tíma sama dag og heimprófið en hún er frá 18-19 held ég ef það er einhverjum sem langar að taka frí úr bókalestri :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2005 17:07:46 / SiggaB

Kröfuganga

hæ hæ er þá ekki málið að hittast kl 11 í skipholtinu á morgun??? Búa til spjöld fá sér í svangin og svo bærinn


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.10.2005 20:01:49 / Hrund

Skautaflauta

Hæ, hæ, já hvernig væri nú að fara að hittast? Mér finnst alveg vera kominn tími á það. En að skreppa á skauta að deginum og hittast um svo um kveldið og gera e-ð skemmtilegt? Allir að koma með sinn blandara osona, ha?

Svo er það mánudagurinn og kröfuspjöldin

Á ekki að skella sér í göngu?


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.10.2005 16:44:58 / SiggaB

Er ekki komin tími til að taka nefið upp úr bókunum?

Glæsilegt nýja útlitið á síðunni :D

Ég var bara að vellta fyrir mér hvort það væri ekki komin timi til að hittast bekkurinn orðið annsi langt síðan. Allir greinilega að taba sér í verkefnavinnu ;)

Var að spá hvort við ættum kannski að láta loksins verða að þessari skautaferð sem var talað um í fyrra en varð aldrei neitt af. Hugsanlega þar sem ég var klaufi ;) hehe vonandi hef ég ekki hrætt fólk hehe.

Alla vega er ekki misserisþing 4 nóvember í skólanum og engin kennska væri ekki tilvalið að skella sér á skauta og fá smá útrás. svo er hægt að setjast við verkefnin endurnærður eftir góða hreyfingu.

Hvað segir lýðurinn ???? 

Það opnar kl 13 í höllinni gæti kannski dílað við kallana að við fengjum að koma eitthvað fyrr. Svo er alveg opið til 20.00

Svo mæta nátturulega allir í gönguna 24 okt.


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2005 09:05:05 / SiggaB

Langar ykkur að læra á skauta ?

 

Hæ hæ mér datt kannski í hug að einhverjum ykkar langaði að læra smá á skauta.
Við erum að bjóða upp á smá kennslu á almenning niður á skautasvelli. Endilega takið ykkur saman myndiði hópa og skellið ykkur á skauta þetta er ógeðslega gaman og ég græði á því ef þið komið til mín ;) hehe  nánar um þetta í viðhengi. þið spjallið þá bara við mig ef þið hafið áhuga á þessu ég skora á ykkur ;) þessi íþrótt er snilldin ein :D
 

 

 

·       Nokkrir þjálfarar hjá Skautafélagi Reykjavíkur bjóða upp á hópkennslu á almenningstímum skautahallarinnar

·       Hver tími er 30 mínútur

·       Í hverjum hóp eru 3-5 þátttakendur (ef þið eruð fleiri/færri er alveg hægt að ræða það)

·       Kostnaður (aðgangur inn á svellið og skautaleiga er ekki innifalið í þessu verði):

·       Fyrir 5 manna hópa kostar það 300 kr. á mann. Sem sagt 1500kr fyrir allan hópinn

·       Fyrir 4 manna hópa, kostar það 400 kr. á mann. Sem sagt 1600 fyrir allan hópinn

·       Fyrir 3 manna hópa, kostar það 500 kr. á mann. Sem sagt 1500 fyrir allan hópinn

·       Hægt er að koma bara eitt skipti eða vera reglulega. T.d einu sinni í viku, aðra hvora viku eða oftar.

 

 



Skautar eru skemmtileg hreyfing og góð viðbót við þá hreyfingu sem er í þjóðfélaginu í dag.

Hlökkum til að sjá ykkur

 

 



Frekari upplýsingar og tímapantanir eru hjá:

Siggu í síma: 6952527 eða e-mail igrisig@khi.is">sigrisig@khi.is  og

Sunnu í síma 6948531 eða e-mail  unnabjork@hotmail.com">sunnabjork@hotmail.com

 

 



    

 

 

 




» 0 hafa sagt sína skoðun

05.09.2005 22:11:43 / Þóra

Takk Takk

Við hjónakornin þökkum kærlega fyrir okkkur, mjög falleg gjöf sem príðir nú  vegg heimilisins.  Mér þótti ákaflega vænt um að sjá Hrund, Helenu og Rebekku, það var nú leitt að þær sem sátu fastar í umferðinni á leið til Hafnarfjarðar komust ekki í tæka tíð :S.

Kveðja Þóra


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6